VERKEFNABLÖÐ

Hérna eru útprentanleg verkefni í íslensku.

Þessi verkefni leggja m.a. áherslu á stutt orð, hljóðkerfisvitund og orðaforða.



Ég er mjög hrifin af verkefnum sem ég kalla “lesa – byggja – skrifa” og ég hef búið til nokkrar útgáfur af þannig verkefnum. Þessi verkefni leggja áherslu á að vinna með orð á fjölbreyttan hátt og þá meiri líkur á að orðið festist betur í minni.

Nemandi byrjar á því að lesa orð (t.d. hægt að láta hann draga spjald eða velja orð úr bók) – því næst byggir hann orðið, t.d. með stafaplötum – stafakubbum, svo t.d. skrifar hann það, leirar það, teiknar mynd – möguleikarnir eru endalausir.